RebZ, villikisi með meiru :)

Of mikið af húsverkum valda heilaskaða.....

Vafraðu um

Tenglar

##adminlink##

Hér er ég um mig frá mér til mín

Uppfært 14. maí 2007

- ég bý í Bryggjuhverfinu

- ég hef búið í Kína

- ég  er að klára hef lokið viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst

- ég hlusta enn á Eurovisionlög frá 2003

- ég þarf alltaf að lesa eða gera sudoku áður en ég sofna

- mér finnst leiðinlegt að taka til

- ég elska Playboy kanínuna

- ég þvæ mér um hárið á hverjum degi

- ég er með einkanúmerið REBZ á bláa sæta Golfinum mínum

- mig langaði að klippa af mér nefið þegar ég var 7 ára

- ég hef einungis brotið eitt bein frá fæðingu

- ég set mig á away á msn ef ég er í vondu skapi

- ég drekk kók light með öllu

- ég er með kreditkort sem ég nota eiginlega aldrei

- ég lifi fyrir að borða

- ég hræðist hárhnoðra

- ég sagðist ætla að verða búðarkona þegar ég yrði stór

- mamma segir að ég líkist Björk

- ég hef aldrei þolað að vera miðjubarn

- sumir eru hræddir við mig

- ég er með 2 tattú

- ég fíla gaura sem eru "kind of a Baldwin" og DROP DEAD GORDJÖSS

- uppáhaldsliturinn minn er blár

- uppáhaldstalan mín er 6

- ég elska að vera sporðdreki

- ég var svo feimin sem barn að ég gat varla talað við fólk

- ég elska að ferðast

- ég var einu sinni skotin í Kára Sturlu og Andra Snæ

- ég ætlaði að giftast Michael Jackson

- ég fór ekki á Robbie Williams tónleikana þótt ég dýrki hann

- ég naga á mér naglaböndin

- löpp er uppáhaldsmaturinn minn

- ég kalla mig Villikisa

- ég er með græn augu

- ég kaupi stundum skúffu af freyjum

- ég er haldin fullkomnunaráráttu

- ég er hrædd við mótorhjólið mitt

- ég er með Playboy kanínu á tönninni

- ég átti einu sinni snjóþveginn gallajakka

- ég á gítar og kann nokkur grip

- ég er mjög þrjósk

- ég spái í að klósettrúllan snúi rétt

- ég þoli ekki fólk sem lýgur

- ég faldi mig í rúmfataskúffu þegar ég var 13 ára til að mamma héldi að ég væri flutt að heiman

- mér er illa við hunda

- ég er hrædd við skordýr

- ég á lobster sem heitir Mjúki

- ég trúi á miðla

- ég strokaði út skipateikningu sem pabbi var búinn að vera marga tíma að teikna þegar ég var 5 ára

- ég er Fylkis-, BMW- og Everton-meðhaldari

- ég ætla að skíra næsta son/kött/hamstur sem ég eignast Trefil

- mér finnst tískubylgjur í mannanöfnum hallærislegar

- ég fékk skólastyrk í hittifyrra og aftur í ár  tvisvar yfir námstímann

- mér finnst fetaostur guðdómlegur

- ég þoli ekki mánudaga

- ég virði þá vini mína sem ég get treyst og standa með mér

- mér finnst kjaftasögur gera lítið úr segjandanum

- ég þarf EKKI að láta afturkalla veiðileyfið mitt

- ég er með sólarofnæmi og pensilínofnæmi

- ég er með sætar tær

- mér finnst strákar sem þora að segja það sem þeir hugsa merkilegri en aðrir

- helsta áhugamál mitt er svefn

- mig langar að stökkva úr flugvél í fallhlíf

- mér finnst stærðfræði æðisleg

- ég er stúdent í dönsku en tala samt ekki stakt orð í henni

- ég er líka stúdent í jarðfræði

- mér finnst Jakob Sveistrup flottastur

- ég átti einu sinni fluff

- mér finnst beljur cool

- mér leiðast Star Wars og þess háttar myndir

- uppáhaldsmyndin mín er Pretty woman

- uppáhaldsbókin mín er Á hverfanda hveli

- ég elska fimmtudaga

- ég drekk bjór með röri

- ég varð tuttuguogtíu  tuttugu og tveggja ára í nóvember

- mér líður eins og ég sé fertug þegar ég fer á Oliver

- ég fíla sumt fólk einfaldlega ekki

- ég á óvini

- ég á enn betri vini fyrir vikið

- ég er vinur vina minna en óvinur óvina minna

- ég hélt einu sinni Orraleika

- ég á systur sem er mörgæs, mág sem er selur og  2 frændur, annar er púki, hinn er skata

- ég var kölluð Rebbi Fox í menntaskóla

- ég hét Jane-FoX á ircinu

- ég hef samið 2 lög, annað heitir HOMMAR og hitt SNABELSKO MEÐ SPISETO

- mér finnst faggar of góðir til að hætta

- ég dýrka börnin mín

- ég vann fyrir Kára Stefáns

- ég hef fjórum  fimm sinnum unnið í HHÍ og tvisvar í Lottó

- ég vann ferð á MTV music awards í Stokkhólmi 2000 á FM957

- mér finnst Feneyjar merkilegasti staður sem ég hef komið til

- mig langar ýkt á Formúlu 1 keppni

- ég hét einu sinni Óli í nokkra daga

- ég er áskrifandi í Hvalfjarðargöngin

- mér finnst FRIENDS spilið frábært

- ég fer ekki lengur alltaf of seint að sofa

##countercode##